Hvað gerir fjármálastjóri í hlutastarfi?

Fjármálastjóri í hlutastarfi hjálpar þér að taka upplýstar ákvarðanir um framtíð rekstrarins með mánaðarlegum greiningum, spám og áætlunum, og reglulegum samtölum þar sem tölurnar eru þýddar yfir í aðgerðir.

Hvernig virkar þjónustan?

Við hefjum samstarfið með ítarlegri úttekt þar sem ég kynnist fyrirtækinu þínu og teyminu, set mig inn í markmiðin þín, fer yfir fjárhagslega frammistöðu liðinna mánaða og bý til fyrstu spár og áætlanir. Í lok þessa fasa hefur þú skýra mynd af því hvar fyrirtækið stendur og hvert það er að fara.

Eftir úttektina tekur við reglulegt samstarf, sniðið að þínum rekstri. Saman þróum við og framkvæmum aðgerðir sem færa þig nær markmiðunum.

Hvenær hentar að ráða fjármálastjóra í hlutastarfi?

Þjónustan hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem eru orðin of flókin fyrir eigendur að halda utan um fjárhaginn samhliða daglegum rekstri en eru ekki nógu stór til að réttlæta fjármálastjóra í fullu starfi.

Hver er munurinn á bókara/endurskoðanda og fjármálastjóra í hlutastarfi?

Bókarar og endurskoðendur sjá um bókhald, launavinnslu, ársreikninga og skattframtöl. Þeir segja þér hvað gerðist í fortíðinni.

Fjármálastjóri vinnur með framtíðina: greinir reksturinn mánaðarlega, gerir spár og áætlanir, og smíðar aðgerðir til að ná markmiðum. Bókhaldið segir hvað gerðist en fjármálastjórinn hjálpar þér að hafa áhrif á það sem gerist næst.

Hvað kostar fjármálastjóri í hlutastarfi?

Verðið er háð umfangi, en algengt er að fjármálastjóri í hlutastarfi kosti á bilinu 20–40% af heildarkostnaði fjármálastjóra í fullu starfi. Þú færð sérfræðiþekkingu án þess að bæta við þig stöðugildi.

Darri Hilmarsson, fjármálastjóri í hlutastarfi

Hafa samband

Vinsamlegast fylltu inn nafn.
Vinsamlegast fylltu inn gilt netfang.
Vinsamlegast fylltu inn skilaboð.

Takk fyrir! Við munum hafa samband við þig fljótlega.