Þegar ég flutti til Svíþjóðar 🇸🇪 2018 þá ákvað ég að læra sænsku til að veita mér möguleika að geta átt samskipti við hvern sem er. Ég vildi geta talað við leikskólakennara og kennara barnanna minna, geta unnið fyrir sænskt fyrirtæki og stofnað fyrirtæki.

Ég vildi ekki vera hamlaður af því að geta ekki talað sænsku. Ég vildi hafa alla möguleika opna og engar hömlur og mér fannst eina leiðin vera að læra tungumálið.

Mér tókst það eins og flestum Íslendingum sem vilja læra sænsku og þurfti að upplifa mörg vandræðaleg augnablik sem ég get hlegið af sjálfum mér í dag. 😁

Ég sé sama vandamál hjá fyrirtækjaeigendum sem skilja ekki tungumál fyrirtækjarekstrar vel. Tungumál fyrirtækjarekstrar er bókhald og fjármál og ef eigandi hefur ekki nógu góða þekkingu þá tek ég eftir að vanþekkingin gerir eigendum erfitt fyrir að reka fyrirtækið. Þess vegna leita þeir til mín, þar sem ég get hjálpað með því að útskýra bókhaldið og fjármálin fyrir þeim.

Mín skoðun er sú að fyrirtækjaeigandi hefur einungis tvo möguleika til að vera ekki hamlaður af vanþekkingu:

  1. Sjálfkunnátta: skilja sjálfur bókhald og fjármál
  2. Þýðandi: Ráða þýðanda sem getur útskýrt bókhald og fjármál á mannamáli fyrir þig

Þýðandi er oftast bókari, endurskoðandi eða fjármálastjóri.

Kanntu tungumál fyrirtækjarekstrar eða ertu með þýðanda sem getur útskýrt fyrir þér á mannamáli?