Ég hitti fyrirtækjaeiganda í síðustu viku sem vantaði hjálp með fjármálastjórnun en eigandinn byrjaði á að sýna mér frábæra skýrslu og aðra áhugaverða hluti.

Það sem hann var að sýna mér var afrakstur vinnu eins starfsmanns. Mér fannst geggjað að svona lítið fyrirtæki gæti gert svona framúrskarandi hluti þar sem fyrirtæki af þessari stærðargráðu skortir oft næga þekkingu innanhús, enda er þetta fámennur hópur og orkan fer mestmegnis í viðskiptavinina. En það kennir manni að það þarf einungis eina manneskju til að breyta hlutum.

Þennan sama starfsmann var fyrirtækjaeigandinn skiljanlega sáttur með. Hann sagði að starfsmaðurinn væri „senda og klára“ starfsmaður.

Það sem eigandinn átti við var að hann gat sent verkefni á starfsmanninn og þau voru kláruð vel og snögglega, ekkert vesen, ekkert drama, bara gengið beint til verks.

Ég skildi hvað eigandinn átti við þar sem ég hef hitt svona týpur og mér finnst skemmtilegast að starfa með þeim.

Þetta fólk er oftast verðmætast í fyrirtækinu vegna þess að það gerast alltaf góðir hlutir í kringum það.

Ertu „senda og klára“ starfsmaður?