Ég hef fundið það í samræðum við viðskiptavini mína og annað fólk í atvinnulífinu þegar við ræðum um ný tækifæri og meiri tekjur að það er eins og maður eigi aldrei að hafna meiri tekjum og nýjum viðskiptum.

Mér finnst ríkja ákveðinn hugsunarháttur að ný tækifæri og meiri tekjur séu einfaldlega jákvæð þróun og að maður eigi alltaf að hoppa á þau. En það gleymist að hugsa út í fórnarkostnaðinn. Ný tækifæri geta ómeðvitað skapað flækjustig fyrir fyrirtækið eða hækkað fasta kostnaðinn. Þá eykst hagnaðurinn ekki þrátt fyrir meiri tekjur.

Þess vegna reyni ég alltaf að vera meðvitaður um hvaða viðskiptavini ég tek að mér. Viðskiptavinur sem passar ekki við þjónustuna mína tekur tíma frá þeim sem gera það.

Ég vil ekki vera allt fyrir alla og reyni frekar að veita ákveðna þjónustu fyrir ákveðna viðskiptavini.

Ástæðan fyrir því er að þá er auðveldara að straumlínulaga alla ferla hjá mér og þjónustan verður keimlík fyrir hvern viðskiptavin. Einnig er auðveldara að vera framúrskarandi í einu en meðaljón í mörgu.

Þorir þú að segja „nei“ við nýjum viðskiptum sem skila litlum hagnaði?