Einu sinni starfaði ég fyrir fyrirtæki sem mér fannst vera að byrja að missa sálina sína. Fyrirtækið var með fínt starfsfólk og góða viðskiptavini. En á einhverjum tímapunkti byrjaði það að tapa sálinni sinni. Starfsfólkið var byrjað að skynja það. En hvað olli því?

Stjórnendur voru byrjaðir að einbeita sér alfarið að peningunum og gleyma gildum fyrirtækisins. Það var öll áherslan á að auka tekjur og auka hagnað. Á sama tíma voru skilaboðin að starfsfólki skipti miklu máli. En stjórnendur sem voru ráðnir voru árangsmiðaðir sem forgangsröðuðu hagnaði fram yfir starfsfólkið.

Þannig að skilaboðin til stjórnenda voru að meiri tekjur og meiri hagnaður skiptu mestu máli. Allar ákvarðanir voru teknar út frá peningum, þar af leiðandi byrjaði starfsfólk að finna fyrir misræmi milli þess sem var gert og þess sem var sagt. Það var sagt að starfsfólkið væri mikilvægt en svo var því sagt upp ef það var hægt að auka hagnaðinn.

En mér finnst vera tvær tegundir af fyrirtækjum í heiminum:

Sálarlaus fyrirtæki:

  • Hámarka hagnað
  • Líta á starfsfólk sem framleiðslueiningu
  • Standa ekki fyrir neitt
  • Skammtímahugsun

Fyrirtæki með sál:

  • Þjóna tilgangi
  • Samstarf við starfsfólkið
  • Standa fyrir gildunum sínum
  • Langtímahugsun

Ertu að reka sálarlaust fyrirtæki eða fyrirtæki með sál?