Þegar ég hjálpa fyrirtækjum sem eiga lítið á milli handanna þá sé ég sama höfuðverk fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þegar þú átt enga peninga þá áttu enga möguleika til að taka áhættu, fjárfesta í fyrirtækinu eða hoppa á tækifærin.
Ástæðan er að þegar fyrirtæki eða einstaklingar taka áhættu eða fjárfesta þá þurfa þau að eiga peninga. Ef þú átt ekki peninga þá ertu fastur, þú getur ekki gert neitt.
Hjá fyrirtækjum er þetta t.d.:
- Prufa nýja vöru eða þjónustu sem gæti mistekist
- Skipta út gömlu sölukerfi sem er barn síns tíma
- Fjárfesta í sjálfsafgreiðslukerfi
Hjá einstaklingum er þetta t.d.:
- Hætta í starfi sem þú ert óánægður í án þess að vera kominn með annað starf
- Stofna fyrirtæki og vera með lítil eða engin laun í nokkra mánuði
Mín skoðun er að afleiðingarnar séu að þú staðnar ef þú tekur ekki áhættur, skiptir ekki út gamla kerfinu eða hoppar ekki á tækifærin þegar þau koma allt í einu.
Ertu að staðna af því þú átt ekki möguleika?