Eftir að hafa hjálpað eigendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja síðustu mánuðina hef ég áttað mig betur á því að eigendum sárvantar hjálp með tvö atriði:
- Fjárhagslega innsýn í reksturinn
- Markmiðasetningu og stefnu
Lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa náð ákveðnu flækjustigi þurfa fjárhagslega innsýn í reksturinn til að vita hvað er að gerast, af hverju hlutir gerast og hvað á að gera í því.
Til að geta hjálpað eigendum sem fjármálastjóri með fjárhagslega innsýn og markmiðasetningu og stefnu þá þarf ég að geta starfað í þrenns konar hlutverkum. Hvaða hlutverk er ég að tala um:
Stig 1 – Stigavörðurinn
Hlutverk fjármálastjóra sem Stigavörður er að búa til ársreikninga, mánaðarskýrslur, mælaborð o.s.frv. Þessar skýrslur hjálpa til að segja „HVAÐ" hefur gerst í rekstrinum. Þessar skýrslur, mælaborð og ársreikningar eru sögulega upplýsingar og upplýsa okkur um fortíðina.
Stig 2 – Greinandi
Hlutverk fjármálastjóra sem Greinandi er að skilja reksturinn og hvaða lykilmælikvarðar hafa mest áhrif á reksturinn. Þá er hægt að útskýra „AF HVERJU" þessir atburðir gerðust. Eigandinn skilur hvað er að gerast í rekstrinum núna.
Stig 3 – Arkitekt
Hlutverk fjármálastjóra sem Arkitekt er að skilja fortíðina, hvar reksturinn stendur núna og að skapa markmið og stefnu með eigandanum. Þá er hægt að ráðleggja „HVAÐ Á GERA NÚ". Hann getur þá tengt aðgerðaáætlun við markmiðin sem eigandinn vill ná í framtíðinni.
Þegar fjármálastjóri getur starfað á öllum þremur þessum stigum þá er hann ekki einungis að upplýsa um fortíðina. Hann er að hjálpa eigandanum að byggja framtíðina. 💪