Ég hef spilað körfubolta síðan ég var 10 ára gamall og á að baki þúsundir kappleikja og æfinga. Ég hef ekki lagt skóna á hilluna og spila ennþá í 2. deildinni. 💪
Það er eitt atriði sem mér finnst gera körfubolta skemmtilegan og það sem mér finnst vanta í fyrirtækjarekstur en það er það sem ég kalla „Miskunnarlausa endurgjöf".
Hvað meina ég með því?
Í körfubolta þá færðu endurgjöf STRAX þegar þú og liðið:
- Slaka á
- Spila ekki sem lið
- Vanda sig ekki
- Leggja sig ekki fram
- Missa einbeitinguna
Það er enginn „biðtími" á milli þess að liðið spilar illa og afleiðinganna. Það kemur í ljós á stigatöflunni og þú færð skell. Þú tapar með 40 stigum og þú finnur fyrir því. Það er engin miskunn í körfubolta.
Í fyrirtækjarekstri vantar þessa „Miskunnarlausa endurgjöf" finnst mér. Þú tekur slæmar ákvarðanir, ert með lélegt kostnaðareftirlit eða lélega fyrirtækjamenningu. Svo líða margir mánuðir eða jafnvel ár áður en þessi atriði koma upp á yfirborðið. Þá átta fyrirtækjaeigendur sig á því að teknar voru slæmar ákvarðanir, kostnaðurinn hefur hækkað jafnt og þétt og lykilstarfsmenn eru hættir.
Það sem ég ráðlegg mínum viðskiptavinum til að minnka „biðtímann" og fá endurgjöf reglulega er:
- Mánaðarlegt Uppgjör: skoða fjármálin mánaðarlega til að fá endurgjöf 12 sinnum á ári en ekki 1 sinnu eins og tíðkast alltof oft.
- Lykilmælikvarðar (e. KPI): fylgjast með lykilmælikvörðum hjá þínu fyrirtæki a.m.k. vikulega.
Ertu með „Miskunnarlausa endurgjöf" í þínum fyrirtækjarekstri eða ertu bara að vona það besta? 😃