Þegar ég hitti fyrirtækjaeigendur sem hafa áhuga á þjónustunni þá reyni ég alltaf að útskýra hvernig hún virkar. Þeir spyrja oft hvort ég starfi sem ráðgjafi.

Svarið mitt er einfaldlega: „Nei, ég er liðsmaður en ekki utanaðkomandi ráðgjafi.“

Ástæðan fyrir því að ég vil ekki kalla mig ráðgjafa er að ég vil ekki að þetta sé ráðgjafasamband. Það er ekkert slæmt við ráðgjafasamband en stóra ástæðan fyrir því að ég stofnaði fyrirtækið var að ég vildi skapa langtímasamband við mína viðskiptavini.

Það er ekkert að því að vera ráðgjafi en ég býð ekki upp á þannig þjónustu. Ég hef ekki áhuga á að starfa sem ráðgjafi, mér finnst það ekki passa við minn persónuleika. Ég elska að spila liðsíþróttir og ég vil spila liðsíþrótt með mínum viðskiptavinum.

Ég skilgreini muninn á liðsmanni og ráðgjafa svona:

Liðsmaður:

  1. Rukkar fast mánaðargjald
  2. Langtímasamband
  3. Hefur áhrif á heildarmyndina
  4. Ráðleggur og framkvæmir með eigendum
  5. Hluti af stjórnendateyminu

Ráðgjafi:

  1. Rukkar fyrir hverja klukkustund
  2. Samband oftast til skemmri tíma
  3. Er með afmarkað verkefni
  4. Ráðleggur en framkvæmir ekki endilega
  5. Utanaðkomandi ráðgjafi

Hvort viltu frekar: einhvern sem ráðleggur þér einungis eða liðsmann sem tekur þátt í leiknum með þér?