Í litlum og meðalstórum fyrirtækjum eru oftast eigendurnir þeir sem stjórna og taka stóru ákvarðanirnar í sínu fyrirtæki.

Þeir geta orðið konungar í sínu konungsveldi sem enginn þorir að véfengja. Þannig að stundum geta þeir tekið ákvarðanir sem hafa slæm áhrif á fyrirtækið og starfsmennina en enginn þorir að segja neitt.

Bestu ákvarðanirnar verða yfirleitt til þegar einhver þorir að spyrja óþægilegu spurninganna en ekki bara samþykkja. Það er stór hluti af mínu hlutverki sem ráðgjafi að hjálpa til við ákvörðunartökuna, jafnvel þegar það þýðir að vera ósammála eigandanum.

Konungurinn er oftast vanur að fá sínu fram og fáir eða enginn sem skorar hann á hólm í sínu konungsveldi. Þess vegna útskýri ég minn þankagang, ekki til að vinna rökræðuna, heldur svo eigandinn sjái allar hliðar og afleiðingar áður en ákvörðunin er tekin.

Þá gæti ég sagt til dæmis:
„Mér finnst þetta slæm hugmynd og ég skal útskýra af hverju." Oftast leiðir það samtal til betri ákvörðunar en hann hefði tekið einn.

Hver skorar konunginn á hólm í þínu fyrirtæki? 😃