Góður vinur minn nefndi við mig um daginn að hann væri að hugsa um að skrá sig í MBA nám næsta haust. Ég hvatti hann til að vega ávinninginn á móti kostnaðinum, bæði í peningum og tíma, og taka ákvörðun út frá því. Markmið hans var að verða verðmætari starfsmaður og auka þekkingu sína.

Ég hef ekkert á móti því að fólk mennti sig frekar en mér finnst það lítið talað um að bæta keppnisskapið til að verða betri starfsmaður eða stjórnandi. En ég hef tekið eftir því að fyrirtækjaeigendur sem ég starfa með sem ná mestum árangri hafa ekki endilega MBA-gráðu en þeir hafa keppnisskap.

Mér finnst keppnisskap vera einn mikilvægasti þátturinn í velgengni fyrirtækja, og um leið einn þeirra sem minnst er rætt um. Velgengni fyrirtækis er háð keppnisskapi leiðtoganna sem stýra því.

Svona lítur keppnisskap út hjá fyrirtækjaeigendum sem ég hjálpa:

  • Eftirfylgni
  • Framtaksemi
  • Að gefast ekki upp
  • Að loka málum
  • Hugrekki til að taka ákvarðanir
  • Drifkraftur

Ert þú einungis að bæta við þekkingu þína eða ertu líka að byggja upp keppnisskapið? 💪