Þegar ég starfaði hjá einu fyrirtæki þá ákvað fyrirtækið að innleiða 4DX (4 Disciplines of Execution). Mér fannst þetta áhugaverð aðferðafræði þar sem markmiðið var að fá starfsmenn til að ýta frá sér hvirfilbylnum í fyrirtækinu og einbeita sér að 1-2 mikilvægum markmiðum (Wildly Important Goals) sem myndu bæta fyrirtækið. Þessi lærdómur fylgir mér enn í dag. 💪

Ég sé nákvæmlega sömu baráttu við hvirfilbylinn hjá fyrirtækjaeigendum sem ég hjálpa. Það er alltaf eitthvað aðkallandi en ekki endilega mikilvægt en samt verður að sinna því. Hvirfilbylurinn er til dæmis:

  1. Svara símanum
  2. Svara tölvupóstum
  3. Samþykkja reikninga
  4. Slökkva elda
  5. Fundir

Þar sem ég skapa mest virði er að hjálpa fyrirtækjaeigendum að einbeita sér að því að bæta fyrirtækið og hvirfilbylurinn hjálpar ekki til við það. Ég reyni alltaf að finna leiðir til að minnka hvirfilbylinn fyrir fyrirtækjaeigendur þar sem það skapar tíma til að einbeita sér að mikilvægum markmiðum sem sitja á hakanum vegna tímaleysis.

Þegar það tekst þá tek ég eftir því að eldunum fækkar og við erum byrjaðir að einbeita okkur að fyrirbyggjandi aðgerðum og mikilvægum markmiðum. Ég ráðlegg fyrirtækjaeigendum að verja að minnsta kosti 20% af tíma sínum í verkefni eins og þessi:

  1. Bæta ferla
  2. Skipta um kerfi
  3. Bæta upplifun viðskiptavina
  4. Búa til bónuskerfi fyrir starfsmenn
  5. Ákveða framtíðarsýnina

Ertu fastur í hvirfilbylnum eða hefur þú tíma til að vinna að 1-2 mikilvægum markmiðum? 😀