Þetta er spurningin sem ég spyr fyrirtækjaeigendur sem ég hitti í fyrsta skipti og þeir horfa á mig oftast sem eitt spurningamerki.

Allir fyrirtækjaeigendur sem ég hef hitt hafa ástríðu fyrir því að veita góða þjónustu en þeir hafa sjaldan ástríðu fyrir fjármálum og bókhaldi.

Flestir fyrirtækjaeigendur skoða fjármálin einu sinni á ári þegar bókhaldsstofan afhendir þeim ársreikninginn fyrir síðasta ár.

Ársreikningur kemur oftast í hendurnar á stjórnendum í september, 9 mánuðum eftir að árið kláraðist.

Þá kemur í ljós hver er staðan og þá átta menn á sig hvernig gekk á síðasta ári. Stjórnendur vita þá hver staðan er og vita oftast ekki almennilega hvað þeir eiga gera við þessar upplýsingar.

Þá er alltof seint að bregðast við þar sem árið kláraðist fyrir 9 mánuðum síðan. Þetta fyrirkomulag gengur engan veginn fyrir flest fyrirtæki þar sem er orðið flækjustig í rekstrinum.

Eina leiðin til að geta brugðist við og stýrt skipinu í rétta átt er að gera upp bókhaldið og skoða fjármálin mánaðarlega. 💪

Annars þarftu að bíða til september 😁