Síðustu mánuðina hef ég verið að líkja hnefaleikum við fyrirtækjarekstur í samtölum við viðskiptavini mína.

Ég geri það í aðstæðum þegar mér líður að fyrirtækjaeigendur eru byrjaðir að gera ráð fyrir að framtíðin verði eins og fortíðin. Þeirra hugsunarháttur er að síðustu ár hafa gengið vel og þar af leiðandi mun það halda áfram. Mitt markmið er að útskýra fyrir fyrirtækjaeigendum að öll fyrirtæki verða fyrir „höggum" sem er ekki hægt að sjá fyrir, t.d.:

  • Lykilstarfsmenn hætta
  • Heimsfaraldur skellur á
  • Stór viðskiptavinur með 25% af veltunni hættir viðskiptum
  • Vextir hækka og vaxtagjöld tvöfaldast

Þessir óvæntu atburðir gera stundum engan undanfara á undan sér og geta verið höfuðhögg og högg í magan í sömu andrá.

Mín skoðun er sú að spurningin er ekki HVORT fyrirtækið verður fyrir höggum heldur HVENÆR.

Enginn hnefakappi fer í hringinn og gerir ráð fyrir að hann fái engin högg. Spurningin er hvort hann er undirbúinn og getur tekið á mótið höggunum og varið sig.

Við stjórnum ekki því hvort lykilstarfsmenn hætta, viðskiptavinir hætta, vextir hækka eða heimsfaraldur skellur á. En við stjórnum því að vera undirbúin. Undirbúningur getur verið:

  • Eiga sjóði til að borga öllum starfsmönnum í 3 mánuði
  • Minnka skuldir á góðu árunum
  • Gera sveigjanlega samninga til að geta minnkað kostnað hratt
  • Búa til plan ef stærsti viðskiptavinurinn hættir

Er þinn rekstur tilbúinn fyrir næsta högg?