Ég hef tekið eftir því að hlutverk fjármálastjórans er að breytast hratt. Ein stærsta ástæðan er gervigreindin. Hún hjálpar við handavinnu eins og að útbúa skýrslur, mælaborð eða ársreikninga. Þá verður hlutverk fjármálastjórans ekki að búa til skýrslur eða framkvæma kostnaðareftirlit. Þá skapast tími til að einbeita sér að öðrum hlutum.

Hvað á þá fjármálastjórinn að gera?

Fjármálastjórinn á að vera „arkitekt“ en ekki stigavörður sem býr til skýrslur og ársreikninga.

En hvað gerir fjármálastjóri sem er arkitekt:

  • Skilur hvar fyrirtækið skapar verðmæti eða eyðir verðmætum
  • Tengir saman stefnu, viðskiptamódel, gögn, kerfi og stjórnarhætti
  • Hannar verðmætasköpun markvisst
  • Tengir aðgerðaáætlun við markmiðin og stefnuna
  • Metur hversu þrautseigt fyrirtækið er við mismunandi aðstæður

Ertu með arkitekt eða stigavörð sem fjármálastjóra í þínu fyrirtæki?