Ég hef séð undanfarið að ung nýsköpunarfyrirtæki hafa aflað sér fjármuna frá fjárfestum eða framtakssjóðum.
Það er mikil ánægja, starfsfólkið glatt og hamingjuóskunum rignir yfir fyrirtækið. Það er eins og fyrirtækið hafi unnið í Víkingalottóinu. Fullt af peningum streymir inn í fyrirtækið og hægt er að stefna hátt og tjalda til framtíðar.
En það gleymist í gleðinni að auknu fjármagni frá fjárfestum eða framtakssjóðum fylgja kostir og gallar. Þetta er ekki eins og að vinna vinning í Víkingalottóinu þar sem vinningurinn getur verið nokkrir milljarðar án skuldbindinga.
Hver eru kostir og gallar við að fá fjármagn frá utanaðkomandi aðila:
Kostir:
- Lengra rekstrarþol (e. runway): fyrirtækið fær tíma til að byggja upp reksturinn áður en það þarf að skila hagnaði
- Hraður vöxtur: hægt er að ráða starfsfólk
- Stefnumótandi tengslanet: getur opnað dyr að verðmætu samstarfi
Gallar:
- Eignarhaldsþynning: neyðir stofnendur til að láta eignarhlut af hendi
- Minni yfirráð stofnenda: eiga minni hlut og geta verið í minnihluta
- Mikil pressa: oft krafa um mikinn vöxt frá fjárfestum
- Sóun í útgjöldum: ýtir undir slakt aðhald og óhagkvæma eyðslu
Víkingalottóvinningur kemur án skuldbindinga. Fjármögnun gerir það aldrei. Þess vegna myndi ég ekki fagna eins og fyrirtækið hafi unnið í Víkingalottóinu.