Áður en ég byrjaði að starfa með einum af mínum viðskiptavinum sagði hann mér að fyrirtækið væri með gamalt kerfi sem hann var að hugsa um að skipta um.

Ég fór að skoða fjárhagsupplýsingar, kynnast starfsmönnunum, kynna mér ferlana og kerfið og eftir nokkrar vikur sagði ég við hann að fyrirtækið væri í handbremsu út af lélegum ferlum og kerfi sem væri ekki búið að þróast í alltof mörg ár.

Hann hafði vaxið fyrirtækið síðustu árin og tekjurnar voru búnar að tvöfaldast. Aftur á móti hafði hann lítið haft upp úr því þar sem hagnaðurinn hafði staðið í stað.

Ferlarnir og kerfið voru ekki skalanleg og því hafði kostnaðurinn fylgt með tekjunum.

Ég útskýrði fyrir honum að hann væri að keyra bíl sem væri í handbremsu sem kæmist einungis í 30 km/klst. Ef við losum handbremsuna þá getur hann farið að keyra á 90 km/klst.

Vandinn er sá að flest fyrirtæki finna ekki handbremsuna sjálf. Hún kemur ekki fram í tekjunum heldur felur hún sig í hagnaðinum sem lætur á sér standa.

Er fyrirtækið þitt að vaxa með handbremsu eða án handbremsu?