Í háskóla lærði ég í hagfræðinni að fyrirtæki hafa það eina markmið að hámarka hagnað. Þegar ég verð reyndari og vitrari átta ég mig á því að það er ekki góð nálgun að hafa hagnað sem aðalmarkmið í rekstri fyrirtækis.

Þessi nálgun snýst um að hámarka niðurstöðuna án þess að taka tillit til kerfisins á bak við niðurstöðuna. Besta nálgunin sem mér finnst er að einbeita mér að því að bæta kerfið í fyrirtækinu frekar og niðurstaðan er eitthvað sem við stjórnum ekki beint.

En hvað er kerfið á bak við niðurstöðuna?

Þetta er:

  1. Virði fyrir viðskiptavinina
  2. Kúltúrinn í fyrirtækinu
  3. Vinnuferlarnir í fyrirtækinu
  4. Samskiptin í fyrirtækinu
  5. Upplýsingaflæðið í fyrirtækinu

Fyrirtæki með frábært kerfi er einfaldlega vel rekið fyrirtæki og niðurstaðan af því verður hagnaður.

Ertu að einbeita þér að því að skapa frábært kerfi eða ertu að hámarka hagnað?