Einn af mínum viðskiptavinum kenndi mér eina mikilvæga lexíu varðandi fyrirtækjarekstur. Áður en ég byrjaði að starfa með honum þá hafði ég verið viðskiptavinur í mörg ár hjá honum þannig að ég þekkti þjónustuna. Ég gerði ráð fyrir að reksturinn væri frábær eins og þjónustan.
En þegar ég fór að starfa með honum þá áttaði ég mig á því að veita framúrskarandi þjónustu er ekki sama og reka framúrskarandi fyrirtæki. Í raun eru þetta tveir aðskildir hlutir sem þarf bæði að sinna.
- Framúrskarandi þjónusta
- Framúrskarandi rekstur
Til dæmis getur bakarinn sem bakar gómsætt bakkelsi sem selst eins og heitar lummur verið með rekstur sem á erfitt með að borga sínum starfsmönnum laun þar sem fasti kostnaðurinn er of hár, sölukerfið úrelt og ferlarnir óskilvirkir.
Þú sem viðskiptavinur verður ekki var við þessi vandamál í rekstrinum heldur borðar bakkelsið með bestu lyst. 😁