Þegar ég hitti fyrirtækjaeigendur til að útskýra þjónustuna þá heyri ég stundum: „Ekki enn ein skýrslan.“

Fyrirtækjaeigendur eru að drukkna í skýrslum og upplýsingum og mest megnis er þetta suð sem skiptir ekki máli. Þá vantar hjálp við að hundsa suðið og einbeita sér að mikilvægu atriðunum. Þess vegna halda þeir að ég sé einfaldlega að bæta við skýrslum og upplýsingum.

Vandamálið er ekki að þá vanti upplýsingar. Þá vantar innsýn og hjálp við að sía út suðið. Afleiðingin er sú að brugðist er við of seint eða ákvarðanir teknar á röngum forsendum.

Það sem þeir halda að þeir séu að kaupa vs raunveruleikinn:

Það sem þeir halda að þeir séu að kaupa:

  1. Skýrslur
  2. Spár og áætlanir
  3. Einhvern til að „fylgjast með tölunum“

Það sem þeir eru í raun að kaupa:

  1. Minni óvissu gagnvart framtíðinni
  2. Betri ákvarðanir, teknar hraðar
  3. Meiri tekjur, hagnað og reiðufé
  4. Að halda sér við efnið

Er vandamálið þitt skortur á upplýsingum eða vöntun á innsýn? 😀