Í fyrirtækjum sem ég hef unnið fyrir er lögð áherslu á að vaxa og auka tekjur á hverju ári. Það er oftast jákvætt en stundum gleymist að skoða hvort þessar auknu tekjur búi í raun til meiri hagnað.
Sem fjármálastjóri er það mitt hlutverk að skoða hvort hver einasta þjónusta sem fyrirtækið býður upp á sé í reynd að skila hagnaði.
Einn af mínum viðskiptavinum var ekki sáttur þegar ég lagði til að hætta með ákveðnar þjónustur sem voru ekki að skila neinu.
Hann sagði að honum líkaði ekki við „að draga saman seglin". Ég útskýrði fyrir honum að þessar þjónustur sem hann bauð upp á væru ekki að skila neinu og flæktu reksturinn. Ef við vildum ná markmiðunum þá væri þetta rétt skref. En ég sá að hann var ekki að hugsa þetta rökrétt þar sem egóið kom í veg fyrir að hann sæi þetta í réttu ljósi.
Egóið sagði:
- Meiri tekjur er sigur
- Minni tekjur er tap
Ég sagði við hann að við gætum ekki látið egóið ráða. Egóið var að koma í veg fyrir að sjá þetta með rökrænu hætti. Tölurnar töluðu sínu máli og að hætta með þessar þjónustur færði okkur nær markmiðunum.
Værir þú tilbúinn að minnka tekjur til að auka hagnað eða myndi egóið standa í vegi fyrir því? 😀