Þegar ég fæ nýjan viðskiptavin þá er það fyrsta sem ég skoða hvernig núverandi uppbygging bókhaldslykla er í bókhaldinu.

Ástæðan fyrir því er að oftast er uppbyggingin tengd skilum á virðisaukaskatti en ekki til að greina reksturinn. Mitt hlutverk sem fjármálastjóri er að greina reksturinn og koma með tillögur.

Til að ég geti sinnt mínu hlutverki þá verður rekstrareikningurinn, efnahagsreikningurinn og sjóðsstreymið að vera greiningar- og ákvörðunartól. Ég vil geta séð hvar fyrirtækið græðir og tapar pening. Þá er hægt að taka ákvörðun og búa til aðgerðaáætlun.

Ef ég get ekki séð á 60 sekúndum hvaða þjónusta er mest arðbær þá veit ég að uppbyggingin á bókhaldslyklum er hönnuð fyrir virðisaukaskatt- og ársreikningaskil.

Getur þú séð hvaða þjónusta er mest arðbær í þínum rekstri? 😀