Ég keypti þessa bók árið 2023 þegar ég bjó í Svíþjóð 🇸🇪 og ég ákvað að lesa hana til að auka mína kunnáttu um bókhald og kannski bæta nokkrum orðum við sænska orðaforðann. 😃

Í síðustu viku rakst ég á þessa bók heima hjá mér og þegar ég las bókarkápuna þá voru orðin „Frá bókfærslu til greiningar" það sem ég tengdi mikið við þá samtöl sem ég hef átt við bókhaldsstofur síðustu mánuðina.

Ég hef átt samtöl við bókara til að skapa struktúr og leiðbeiningar á því hvernig bókfærslan á að vera. Hún skiptir miklu máli þar sem bókfærslan er fyrsta skrefið í ferlinum sem ég er að reyna að skapa fyrir viðskiptavinina mína. Ferillinn sem ég tala um er þessi:

Bókfærsla → Skýrsla → Greining → Aðgerðaáætlun

Bókfærslan er inntakið og skýrslan (t.d. rekstrarreikningur) er úttakið. Ef bókfærslan er röng þá verður skýrslan röng. Það leiðir einnig til þess að greiningin verður röng. Allur ferillinn er háður réttu inntaki (bókfærslan) í byrjun.

Aftur á móti hef ég fundið fyrir mótþróa frá bókhaldsstofum við að eyða tíma í að hafa bókfærsluna „rétta". Bókhaldsstofurnar eru vanalega að drukkna í verkefnum og eru skiljanlega ekki spenntar fyrir að fá meiri vinnu.

Ég hef tekið eftir því að bókhaldsstofur sinna skilum á virðisaukaskatti og launavinnslu alveg 100%, en þegar kemur að bókfærslu sem styður við greininguna þá er það ekki eins mikilvægt, örugglega af því enginn hefur beðið um það áður. 😃

Er bókfærslan þín að styðja við greininguna á rekstrinum?