Hver kannast ekki við það að kaupa áskrift að streymisveitu eða appi og svo átta sig á því ári seinna að notkunin er hætt en það er ennþá verið að borga áskriftina. Þá hafa oftast einhverjir þúsundkallar farið í vaskinn.
Ég sé nákvæmlega sama hegðunarmynstur hjá fyrirtækjaeigendum nema það eru hærri upphæðir.
Áskriftir og þjónustur sem starfsmenn eru löngu hættir að nota eða gamlir starfsmenn hættir og enginn sagði upp áskriftinni.
Ég hef uppgötvað hjá fyrirtækjaeigendum sem ég hjálpa að það er verið að sóa tugum eða jafnvel hundruðum þúsunda á mánuði í áskriftir og þjónustu sem enginn er að nota.
Til að koma í veg fyrir þetta bið ég fyrirtækjaeigendur sem ég hjálpa að það sé innleitt tvö atriði til að fyrirbyggja þessa sóun:
- Yfirferð á öllum áskriftum og þjónustum a.m.k. á 12 mánaða fresti.
- Skapa ferli við starfslok starfsmanns (e. Offboarding) þar sem öllum áskriftum og þjónustu er lokað eða sagt upp.
Þegar þetta er innleitt hjá fyrirtækjum þá ertu búinn að skapa ferla sem kemur í veg fyrir að verið sé að borga fyrir áskriftir sem enginn er að nota. 💪
Hversu oft ferð þú yfir þínar áskriftir? 😃