Í síðasta mánuði fann ég 6 milljónir króna í óþarfa kostnaði hjá nýjum viðskiptavini. 💪
Ástæðan er sú að þegar ég byrja með nýjan viðskiptavin þá einbeiti ég mér alltaf að útgjöldunum fyrst. Ef ég finn 6 MISK í óþarfa kostnaði þá eykst hagnaðurinn um 6 MISK.
Ég hef alltaf fundið nokkrar milljónir á ári í kostnaði sem enginn vissi að var verið að borga.
Á sama tíma var allur fókusinn á að selja meira og afla meiri tekna. Kostnaður á það til að laumast aftur inn án þess að nokkur taki eftir því.
Áður en þú eltir meiri tekjur, farðu yfir þetta:
- Segðu upp áskriftum sem enginn er að nota lengur
- Berðu saman áskriftakostnað við raunverulega notkun
- Endursemdu við birgja
- Endursemdu við banka, tryggingafélög og færsluhirða
- Segðu upp þjónustu sem er ekki lengur notuð
Þetta er nákvæmlega svona sem þú finnur þínar 6 MISK.
Oftast er stysta leiðin að meiri hagnaði ekki endilega að selja meira. 😀